Auglýsing

Atburðarteljari

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

Leikur dagsins

Barnaland

04. febrúar 2008 klukkan 20:27
jæja þá er ég búinað mndast við að búa til síðu fyrir lillamann og held áfram á næstu dögum að gera hana klára og hef hana opna þangað til.
Kveðja Gréta og lillimann
http://barnaland.is/barn/69481/
margrét Andrésdóttir
2 athugasemdir

Hæ;)

31. janúar 2008 klukkan 22:39
jæja núna er minnsti meðlimurinn í fjölskyldunni orðinn 8 vikna í nákvamlega þegar þetta er skrifað og verð ég að  segja að hann er alveg rosalega góður og stiltur, algjört draumabarn;)
Um þar síðustu helgi drifum við okkur öll í ferðalag og keyrðum á Hornafjörð og verð ég að segja að það var sko alveg rosalega gott að hitta fólkið sitt....við lögðum af stað strax eftir næturvakt hjá honum Bjössa á föstudeginum og fórum heim á Mánudeginum;)
Annars er búiða ða vera alveg rosalega vont veður hérna í dag og er svo mikill snjór núna og þæfingur að það sést lítið sem ekkert út um gluggana hérna hjá mér en það er sko allt í lagi því það var bara hitað kakó og haft það huggó og það er svo vont veður að Bjössi kemst ekki heim úr vinnunni svo Alcoa bauð þeim gistingu á hótelinu á Reyðarfirði og mat og alles svo ég held að honum finnist það sko ekki leiðinlegt....hehehhehehe
Ég og lillimann voru í mömmumorgnum í morgun og erum búin að fara alla fimmtudaga núna í 3 vikur og svo erum við nokkrar sem reynum að hittast aðra daga líka;)
Ég og Brynhildur vinkona erum allavegna duglegar að hittast og fá okkur kaffi svo það er sko alveg möst þegar maður er heima með svona kríli, annars reyna Begga og Svava og koma líka og hitta okkur eða bara að dropa inni í kaffi og verður það auðveldara fyrir Svövu þar sem hún var að kaupa hús hérna í götunni hjá mér:)
Síðasta Laugardag fór ég út að labba með lillamann í fyrsta skiptið og löbbuðum við í kaffi til Dagrúnar og var Marta að kynnast stelpunni hennar sem heitir Sonja og býr hérna í næstu götu svo þær geta farið að hlaupa í heimsókn til hvor aðra;)
Við erum búin að ákveða að láta skíra 24 mars eða á annan í páskum í Vallaneskirkju því það er kirkjan hans Bjössa og þar er lilta snúllan okkar sem fékk ekki að lifa jörðuð hjá ömmu þórdísi.
Við erum svo að reyna að fá sumarbústað á Einarstöðum fyrir þá sem vilja koma og vera eitthvað og gista svo það verður auðveldara að kíkja á okkur og erfiðra að koma með afsökun um að komast ekki;)
Jæja ég ætti nú að fara að sofa það sem það eru allir sofnaðir hérna nema ég;)
Stebba mákona gistir hérna hjá okkur því það er eiginlega ófært í sveitina eins og er og bara rugl fyrir hana að vera að fara heim til að koma kl 6 í fyrramálið aftur í vinnu svo hún verður hérna sem er bara gott þar sem Bjössi minn er ekki heima .......
En þanngað til seinna þá bið ég að heilsa öllum og bið ykkur endilega að kommenta þar sem það er svo gaman að sjá hverjir það eru sem nenna að lesa bullið í mér;)
Kveðja Gréta og fjölskylda
margrét Andrésdóttir
3 athugasemdir

smá fréttir:)

04. janúar 2008 klukkan 09:37
ég vil byrja á því að óska ykkur gleðilegt nýtt ár og þakka fyrir það gamla....það er ótrúlegt að það skuli vera komið 2008, þetta einhvern vegin flýgur áfram og maður verður gamal á í næstu viku með þessu áframhaldi en níg með það.
Mér langar aðeins að skrifa um fæðinguna hjá lilla okkar.
Hún byrjaði á þriðjudeginum 4 dem um kvöldið því þá fór ég upp á meðgöngudeild og fékk stíl til að koma mér af stað og átti að sprengja belgin um morguninn eftir en það var allt fullt á fæðingarganginum svo það var ákveðið að bíða með það svo ég fékk bara annan stíl um morguninn og svo annan um kvöldið og þegar þarna var komið við sögu var ég búin að vera með væga en samt óþægilega verki í meira en sólarhring en svo á fimmtudagsmorguninum kl 11 á fór vatnið hjá mér svo við fórum upp á fæðingargang þá og var set  upp dripp og var ég með 2 í útvíkkun þá svo nú var bara að bíða og vona það besta...........en allt kom fyrir ekki og um 4 leitið var ég ekki komin með nema 4 í útvíkkun og var ég þá beðin um að taka þátt í einhverji rannsókn og ég eins og asni alltaf að reyna að gera allt fyrir alla sagði já (sé mikið eftir því núna) en þessi rannsókn var þannig að það voru settar 17 litlar blöðkur á magan á mér og átti ég að liggja kjúrr í 1 klukkutíma og það er sko miklu verra en það hjómar að vera kjúrr með hríðar en þetta tókst einhvern vegin svo þá var athugað með útvíkkunina og var húnn enn um 4 svo mér var boðið mænustunga sem ég þáði og það var auðvitað að fyrsta stunga virkaði ekki svo þau vildu engilega að ég fengi aðra en ég vildi það sko alls ekki en þegar leið á kvöldið og út víkkunin var komin í 8 til 9 vildu þau endilega að ég fengi aðra mænudeifingu sem ég þáði með trega (sem var kannski eins gott miðað við hvernig þetta endaði svo) en þessi virkaði eitthvað smá en ég var orðin svo þreytt þarna að þegar læknirinn sagði mér að sitja á rúmbrúninni þá var ég alltað að sofna og Bjössi var í því að grípa mig eða hreinlega bara halda mér, en í einni biltunni þá hoppaði kollurinn á lilla upp úr grindinni og hann kom niður með andlitið svo þegar læknirinn fann hvernig komið var og ég var eiginlega bara hætt við og faið að sofa (örugglega eina konan í heiminum sem hætt við með 10 í útvíkkun og fór bara að sofa) þá var eina í stöðunni að gera bráðakeisara og þá gerðust hlutirnir hratt og var ég skorin upp og hann kom í heimin kl 22:00 og fór beint upp á vöku með pabba sínum.
Þegar það var búiða ða sauma mig fór ég á vöknun að jafna mig og kom Bjössi þangað og var með mér og sýndi mér myndir af litla sem er fullkomin í alla staði en hann kom svo til mömmu sinnar og pabba um 1 leitið um nóttina og kom með okkur niður á sængurkvennadeild sem við vorum fram á sunnudag.
En eitt get ég sko svarið það mér finnst ógeðslegt að fara í keisara og vel ég sko hiklaust venjulega fæðingu ef það er val um þetta.
En hann lilli er sko mjög vær og góður og sefur og drekkur bara, og finnst ljósunni hérna hann sofa of mikið svo ég verð að vekja hann á 4 tíma fresti á daginn en hann fær sko að sofa sína 7 til 8 tíma á nóttunni mér og pabba sínum til mikillar ánægðu;)
Núna er mjög tómlegt hérna í kotinu þar sem börnin eru farin í skólan eftir fríið og Bjössi er farinn að vinna svo við erum bara 2 heima.
en jæja ég er að spá í að fara að taka miður jólin hérna hjá mér á meðan veið erum bara 2 heima svo ég bið að heils og bið ykkur endilega að skrifa komment því það er svo gaman að lesa þau og sjá það hverjir það eru sem lesa það sem ég er að skrifa og líka hvort það er yfir höfuð einhverjir sem fara hérna inn að lesa það sem ég er ða skrifa.
en þangað til næst, hafið það sem allra best ........kveðja Gréta og lillimann
margrét Andrésdóttir
10 athugasemdir

Myndir

27. desember 2007 klukkan 20:58
ég setti 3 myndir inn en gat ekki sett fleiri því talvan er eitthvað að ergja mig og ruglar myndunum alltaf svo þessar verða bara að að duga í bili en svo vil ég óska ykkur öllum Gleðilegra jóla og farsælt nýtt ár;)
Kveðja frá Mánatröð;)
margrét Andrésdóttir
4 athugasemdir

Heima;)

06. nóvember 2007 klukkan 12:30
Jæja þá er ég komin heim frá Reykjavík og skoðunnin þar gekk mjög vel....krílið er orðið stórt og myndarlegt en ég tek nú ekkert rosalega mikið mark á því , því það var sagt að Andri væri nálægt 20 merkum en var nú bara tæpar 14 merkur svo það er bara að bíða og sjá;)
En þeim í Reykjavík halda að mér finnst gaman að fljúga því ég á að mæta í skoðun þar 13 nóv.
En annars er það að frétta að Marta er enn á Höfn og hann Andri fór þangað á sunnudag því hann er í vetrafríi þanngað til 12 nóv svo honum langaði að heimsækja ömmu sína og afa og var það bara í besta lagi svo ég og Bjössi eru bara ein í kotinu sem er eiginlega alveg rosalega skrítið þar sem 16 ára tvíburar sem systir hans Bjössa á hafa verið hérna hjá okkur á virkum dögum en eru ekki núna þannig að það er sko alveg rosalega rólegt hérna en ég hef svo sem alveg nóg að gera því ég er að þvo barnafötin;)
Svo erum við að fara á jólaglaðning á Laugardag með Alcoa á Norðfirði og er það sko matur, sýning og ball og hlakka ég mikið til.
Jæja ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengra í dag en kem með fréttir þegar ég kem heim frá reykjavík í næstu viku.
Þanngað til næst hafið það sem allra best.....kveðja Gréta og Co
margrét Andrésdóttir
11 athugasemdir

Hæ;)

23. október 2007 klukkan 16:45
Jæja ég hef ákveðið að koma með eina nýja færslu hingað inn og segja aðeins hvað er í gangi hjá okkur;)
Meðgangan gengur svona vel fyrir utan allar auka skoðanirnar sem við höfum þurft að fara í..............svo er málið að krílið er orðið stórt eða var um 2,3 kíló á 32 viku og lítið legvatn.....svo ég hef þurft að vera undir meira eftirliti og er að fara í bæinn í kvöld og í skoðun á morgun því við höldum að legvatnið hafi farið að leka á laugardagsnóttina en það kemur allt í ljós á morgun:)
Annars er það að frétta að Marta er farin á Höfn svo ég geti tekið þessu öllu með ró og er ekki laust við það að maður er strax farin að sakna hennar:(
Andri er að standa sig eins og hetja í skólanum og hefur aldrei gengur betur en eimitt núna svo það er jákvætt:)
Þessa daganna er verið að undirbúa komu litla bumbubúans og erum við öll voða spennt og get ég sko sagt ykkur það að það er sko allt annað að vera með maka sér við hlið heldur en að standa einn í meðgöngu og öllu tilheyrandi...........Marta er aftur á móti alveg ákveðin að flytja að heiman ef að þetta verður strákur:(
Flestum framkvæmdum hérna heima er að ljúka nema það á eftir að klára vegginn sem við vorum að rífa niður en ætlar hann Bjössi að vera búinn áður en krílið kemur en svo er bara að sjá hvort það takist eða ekki því hann er að vinna alla daga frá 7 - 19 á kvöldin:(
jæja ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili því það eru komnir gestir ....en það er aldrei að vita nema ég skrifi færslu um hvernig gekk í reykjavíkinni:)
þanngað til næst hafiði það sem allra best........
margrét Andrésdóttir
5 athugasemdir

Hætt !!!

26. júlí 2007 klukkan 10:11
Jæja ég hef ákveðið að hætta að blogga þar sem það er engin sem skrifar komment inn á síðuna mína og þar sem ég var að skrifa um að það væri fjölgun á þessu heimili og það er ein af öllum fjöldanum sem hefur lesið þetta skrifað komment( takk 'Iris mín)...........
Hafið þið það sem allra best Kveðja Gréta og Co á Egilsstöðum
margrét Andrésdóttir
4 athugasemdir

Fjölgun;)

09. júlí 2007 klukkan 15:01
Jæja það er svo sem komin tími á nýja færslu hérna.........það er allt gott að frétta héðan úr sólinni og get ég sagt ykkur það að það rigndi hérna í síðustu viku og var Marta alveg hissa á þessu og spurði hvað þetta væri eiginlega, hún hafði ekki séð rigningu í svo langan tíma;)
En við erum búin að vera heldur betur á faransfæti núna það sem liðið er af sumrinu og erum búin að fara 2 sinnum til Reykjavík og á ættarmót á Vopnafirði og núna síðast á humarhátið og erum við að gera okkur klár í næsta ferðalag og er það núna um næstu helgi, þá ætlum við að hittast öll upp í lóni því hún elskulega amma mín (Gréta) er 75 ára á laugardag svo börnin hennar og barnabörn og barnabarnabörn ætlum að halda lítið ættarmótog það verður alveg örugglega rosagaman því hann afi (Lars) er sko búinn að leigja rosa stóran hoppukastala fyrir börnin ;)
Svo eftir helgi ætlum við að vera nokkra daga hjá mömmu og pabba eða fram á miðvikudag og þá ætlum við að skella okkur í bæinn í smá verslunarferð og í 19 vikna sónar;)
Já við erum að fjölga aðeins við litlu fjölskylduna;)
Það gengur allt vel hjá mér og litla bumbubúanum og mikil tillhlökkum í gangi hérna;)
jæja ég verð að fara að fara því hann Andri er að bíða eftir mér við erum að fara hérna á túnið fyrir framan húsið okkar að æfa golf;/ ekki að ég kunni það en maður verður nú stundum að reyna eða það segir hann Andri allavegna svo maður verður bara að láta sig hafa það og vona að maður slái nú engan niður eða brjóti eitthvað;/
Þangað til næst þá bið ég ða heilsa öllum :)
Kveðja héðan úr sólinni Gréta og Co
margrét Andrésdóttir
1 athugasemd

NÝTT E-MAIL ;)

09. júlí 2007 klukkan 14:50
Jæja þar sem talvan mín er eitthvað að stríða mér erum við komin með nýtt e-mail og ætlum við að nota hotmailið og það er gretaa66@hotmail.com
Þangað til næst hafið það sem allra best;)
margrét Andrésdóttir
Engin athugasemd

Veður!!

24. maí 2007 klukkan 13:41
Jæja ég sá það að hún Eva mín var að rukka um eitt blogg þanning að það er réttast að hlýða henni;)
Hvenig er þetta eiginlega með þetta blessaða veður hérna á Íslandi???????
Hérna er búið að vera alveg rosalega gott veður en þó að maður sé úti í sólbaði eða eitthvað að dunda sér í garðinum í sól og blíðu þá kemur stundum allt í einu hagl eða snjókomma eða einfaldlega rigning.........ég er nú að vona að þetta verði nú ekki svo í allt sumar:/
Héðan er nú allt það fína að frétta og það líður öllum mjög vel nema ég fékk í eyrun aftur og er búin að vera í lyfjagjöfum í æð í rúma viku 3 x á dag og það er búið að taka pínu toll af mér en þetta er nú allt að lagast held ég eða alla vegna í bili svo það er bara að vona það besta;)l............Við hjónaleysin fórum í bæinn um daginn og versluðum alveg heilan helling af allskyns drasli og þá aðalega þvottavél,úti borða og stóla, gasgrill,mottu svo eitthvað sé nefnt og svo var þessu öllu hent upp á kerru og brunað með það austur og þá meina ég brunað því ég var að keyra bílin en Bjössi var á mótorhjólinu sínu og ég vildi nátrúlega ekki vera skilin eftir einhverstaða svo ég hafði mig sko alli við að ná honum og munaði það litlu því hann var kominn heim til mömmu og pabba aðeins 15 - 20 mín á undan mér;)
Núna er skólin að verða búin hjá Andra og Mörtu svo það er verið að reyna að plana sumarið og það er sko alveg heill hellingur sem er í boði fyrir börnin hérna svo núna fara næstu dagar í að velja eitthvað skemmtilegt...........en planið hjá okkur í sumar er að fara á 2 ættarmót og á hátíð á Höfn og vonandi að skreppa til Evu þegar hún verður komin aftur út;)
jæja ég ætla nú ekki að hafa þetta mikið lengra í dag en lofa að koma með betra blogg næst en þangað til hafið þið það sem allra best;)
Kveðja Gréta og fjöskylda.
margrét Andrésdóttir
3 athugasemdir